Harry Potter and the Order of the Phoenix

Ég fór á myndina á föstudagskvöldið kl. 11 og ég verð að segja að þessi sýningartím er snilld engir krakkar að trufla sýninguna! Jæja en um myndina, mér fannst hún góð, auðvitað var hún ekki nærri jafn góð og bókin en það er líka vegna þess að bókin er 607 blaðsíður og þeir framleiða ekki 5 klst langar myndir (þótt að ég væri til í að sjá þær. Leikurinn í myndinni er FRÁBÆR enda úrvalslið breskra leikara. Umbridge er æðislegt maður elskar að hata hana! Luna er ekki alveg eins og ég hafði ímyndað mér en hún venst afskaplega vel. Ron var einstaklega góður í þessari mynd og tvíburarnir eru æði, ég var frekar fúl yfir að þeir styttu atriðið þegar þeir hætta í skólanum og gera allt brjálað. En það sem pirrar mig mest við myndina er að þeir breyttu lookinu á vitsugunum og Húsið hans Siriusar er ekkert eins og ég hafði ímyndað mér það að utan. Svo fannst mér vanta alla dramantíkina sem var í bókinni sérstaklea þegar Sirius deyr, ég fór að hágráta þega ég las bókina en á myndinni gleymdi ég bara að það hefði gerst.

Og svo til gamans:
Find out your Harry Potter personality at LiquidGeneration!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér fannst hún líka mjög skemmtileg. :)

 Hlakka geðveikt til að lesa sjöundu um helgina!

Halla (IP-tala skráð) 17.7.2007 kl. 20:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband