Búið...

það eina sem ég vil segja er:  Grát Crying...

aldrei aftur ný saga um Harry Potter...... Bókin er geggjuð sérstaklega síðustu 200 blaðsíðurnar en ég vil ekki segja neitt hérna svo að ég skemmi pottþétt ekki fyrir neinum.


Harry Potter and the Order of the Phoenix

Ég fór á myndina á föstudagskvöldið kl. 11 og ég verð að segja að þessi sýningartím er snilld engir krakkar að trufla sýninguna! Jæja en um myndina, mér fannst hún góð, auðvitað var hún ekki nærri jafn góð og bókin en það er líka vegna þess að bókin er 607 blaðsíður og þeir framleiða ekki 5 klst langar myndir (þótt að ég væri til í að sjá þær. Leikurinn í myndinni er FRÁBÆR enda úrvalslið breskra leikara. Umbridge er æðislegt maður elskar að hata hana! Luna er ekki alveg eins og ég hafði ímyndað mér en hún venst afskaplega vel. Ron var einstaklega góður í þessari mynd og tvíburarnir eru æði, ég var frekar fúl yfir að þeir styttu atriðið þegar þeir hætta í skólanum og gera allt brjálað. En það sem pirrar mig mest við myndina er að þeir breyttu lookinu á vitsugunum og Húsið hans Siriusar er ekkert eins og ég hafði ímyndað mér það að utan. Svo fannst mér vanta alla dramantíkina sem var í bókinni sérstaklea þegar Sirius deyr, ég fór að hágráta þega ég las bókina en á myndinni gleymdi ég bara að það hefði gerst.

Og svo til gamans:
Find out your Harry Potter personality at LiquidGeneration!

Ný tölva!

talva

 

Jamm nú eiga ekki allir eftir að horfa á mig í fyrirlestrum í skólanum vegna þess að það koma skrítin hljóð úr tölvunni minni sem trufla fólk sem situr í 2m radíus frá henni. OG svona -----------------------> lítur nú gripurinn út, lítil og sæt bara 14" skjár en samt ansi öflug.  Með henni fylgdi svo Windows Vista sem tölvunarfræðingurinn á heimilinu er að reyna að finna hvernig virkar...!

 

Síðustu elgi var farið í ágætis bústaðaferð með vinunum... og bakkusi. Sú ferð heppnaðist bara vel, ég gekk meira að segja á Eldborg! (ég veit ekki hæðsta fjall í heimi) Í gær fór ég svo aftur í Borgarfjörðinn en í þetta sinn með vinnunni. Fyrst var farið í Hvalfjörðinn þar sem við borðuðum á Glym, síðan lá leiðin niður í skorradal og til Hvanneyri og loks var endað í Skallagrímsgarði í Borgarnesi. Þetta var ágætisferð og "minnisstæð" eins og ein konan frá sambýlinu komst að orði Tounge.

En annars er lítið að frétta úr Eggertsgötunni við erum bara alltaf að vinna....

see u later aligater!

 

 


blogg

Jæja það er víst svoldið langt síðan síðast..

Síðan skólinn kláraðist er ég bara búin að vera að vinna og vinna. Er farin að mæta svolítið í sund og er bara kominn með smá lit. núna sit ég hinsvegar bara ein heima og er fúl yfir að enginn vilji koma í kvennahlaupið með mér...

Ég er líka búin að ákveða útilegu eða sumarbústaðferð helgina 7-8 júli þeir  mega koma með sem vilja en þetta virðist vera eina helgi sumarsins sem við pálmar getum átt sameiginlegt frí og komist úr bænum.

En ég nenni ekki að skrifa meira ætla að fara í sturtu og reyna að gera eitthvað við daginn. 


Ég vissi að við Kotra ættum vel saman!

You Should Own a Beagle
Low maintenance, very friendly, and sturdy.

læra læra læra

Já þannig er lífið núna enda alltof lítill tími sem að maður fær á milli prófa. Fyrsta var í gær og næsta er á morgun... en óneitanlega er gott að vita af því að þetta vesen er búið 9. maí. Annars er ég nú ekki búin að vera neitt ógó dugleg að læra. Eldaði fínan sunnudagsmat áðan og það tók sinn tíma en maður verður nú að borða og þetta var líka afmælismaturinn hans Pálmars. Hann var svo upptekinn á föstudaginn að ég gat ekki eldað kvöldmat fyrir hann... en hann fékk kaffitíma á búlluni í staðinn og svo var kökuveisla seinna um kvöldið. Annars verður slappað pínu af á morgun...ekki mikið samt það er frumulífræði á föstudaginn en samt pínu. Kanski gefur maður sér jafnvel tíma til að þvo smá þvott og taka til en það er nú samt ekki líklegt. Ég vil semsagt ekki fá neina gesti fyrr en eftir próf takk....

Flutningar og próf

Jæja núna erum við að verða búin að koma okkur fyrir og netið komið upp þannig að ég ákvað að gefa mér tíma fyrir smá blogg. Það er ótrúlega gott að vera farin að búa, ég ræð sjálf hvenar það á að taka til og elda og svoleiðis. Pálmar er mjög hamingjusamur með það hversu dugleg er er búin að vera að elda fyrir hann. Í kvöld var það hálfheimatilbúin pizza, hálf vegna þess að ég keypti deigið tilbúið í Bónus. En hún var samt bara mjög góð og gott að losna við allt uppvaskið sem kemur af því að gera deigið sjálf.

 En fyrst prófið er á laugardaginn og ég er að verða mjög stressuð en það reddast ábyggilega og 9. maí verður þetta allt búið. en best að fara að snúa sér að bókunum aftur...


Finnst ykkur við ekki lík?


já ég veit...

það er mjög langt síðan ég skrifaði eitthvað hérna síðast. Það er bara lítið í fréttum hjá mér. Ég held reyndar að ég sé komin á það að segja já við stækkun álvers næstkomandi laugardag. Ég hef bara ekki enn heyrt eitthvað sem nær að snúa mér á móti, ég hef stundum verið alveg á mörkunum en samt alltaf á því að stækkunin sé ekki það versta. Slysið í þessu öllu saman var náttúrulega að leyfa álverið þarna upphaflega en nú er svo komið að ég held að hafnarfjörður megi ekki við því að missa það. Ef það gerist verðum við líka bara alveg eins og öll hin bæjarfélögin á höfuðborgarsvæðinu þ.e. hreint og beint úthverfi. ok við eigum reyndar ennþá höfnina og allt í kringum fiskinn. en ef þið eruð ósammála mér þá megið þið endilega reyna að segja mér eitthvað sem ég hef ekki heyrt áður. 

Eitt spennandi sem er búið að gerast hjá mér....ég er nebbla búin að ákveða að gerast grasafræðingur! Ætla reyndar að leggja mikla áherslu á umhverfið í heild, loftslagsbreytingar og mengunarvandamál og slíkt, tekk sennilega nokkra áfanga af jarðfræðibraut sem hljóma spennandi. Reyndar ætla ég líka að taka flesta þá áfanga sem tengjast dýrum líka  því að þar liggur náttúrulega mesti áhuginn hjá mér.

Svo bíðum við bara spennt eftir því að flytja á garðana sem mun sennilega gerast föstudaginn 13.apríl...

bæjó

 


Jess...!

Ég var rétt í þessu að fá email um að það væri að losna fyrir mig íbúð á hjónagörðum í apríl!


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband